Jólanótt

Hjá rúmi barnsins logar ljós í stjaka.
Hve líf sem friður nýtur andar rótt.
Ég veit í haga hirðar góðir vaka
og hjarðar sinnar gæta enn í nótt.

En burt er vikinn sá er forðum færði
þeim fögnuð mikinn lýðnum nýja von.
Með kross á enni annar kom og særði
til ólífis þinn bróður,mannsins son.

Og fánýt er þín leit að leiðarstjörnum:
þær leynast daprar bak við niðdimm ský.
Því handa jarðarinnar jólabörnum
er jata engin til að fæðast í.

Með ykkur snauðu hirðar vil ég vaka
og vitringunum þessa löngu nótt
og minnast þess við lítið ljós í stjaka,
hve líf sem friðar nýtur andar rótt.

Ljóð Einar Bragi

til baka