|
Um
Jól
Þegar
dimman læðist yfir lönd
ljóssins birta skín á hverja strönd.
Himnafaðir horfir börn sín á
þau hugsa um ljósið,sem að allir þrá.
Og
birtan kemur yfir hauð og haf,
himnageislar vefja birtutraf.
Því jólin koma og minna manninn á
mannsins son sem kemur himnum frá.
Hann
blessar yfir börn og þessa jörð
og brýst þá yfir sérhver fjallaskörð
til þín að komast kaldri nóttu á
og hvísla þér í eyra blessun þá.
Þú
hjálpar öllum himnnafaðir minn
og hugsar fyrir öllu nú um sinn
og gefur okkur Drottins dýrðarjól oss dreymir ætíð vorsins björtu sól.
Öll
við fögnum Frelsari minn kær,
frelsishátíð óðum færist nær.
Við gleðjumst öll með Guði hér á jörð.
Vor góði Drottinn blessi mannahjörð.
Ljóð
Bjarni Marinó Þorsteinsson
|