Geisladiskurinn Ævintýraheimurkom út fyrir jólin 2008.

Myndlistarkonan og rithöfundurinn Rúna K. Tetzschner skrifaði sögu og gaf út um Ófétabörnin árið 2005 og í kjölfarið bað hún Ósk að semja lög við ljóð sín um þessi litlu kríli fyrir börnin og það gerði hún með glöðu geði.

Ófétin eru stríðnar og skemmtilegar litlar verur sem búa í blómum og fljúga á fiðrildum. Þau minna á blómálfa en hafa misst vængina vegna ófriðarins sem ræður ríkjum í ófétaheimi, nú hafa þau fengið krækiklær í stað vængja og gullinhærðu og svarthærðu ófétin rífast sífellt, berjast og slást.

Friðarkóngurinn Indígó og töfradrottningin Marþöll gerast boðberar friðarins í ófétaheimi og börnin leggja þeim lið við að koma á friði.

Ósk og Númi Björnsson gítarleikari sáu um hljóðfæraleik auk þess sem Þórdís Claessen spilaði á slagverk og Jón Gunnarsson á skeiðar. Hunter Immanúel og síðast en ekki síst Álfheiður Erla sáu um sönginn ásamt Ósk og barnakór Bústaðakirkju undir stjórn Jóhönnu Þórhallsdóttur.

Hlusta á Munaðarlausu börnin

Á bókasafninu í Garðabæ komu Rúna og Ósk fram og kynntu Ófétin