Barnsins bros

Hvað er fegra en fagurt bros
hjá frjálsu barni um vor.
Andlit þess er uppljómað
af ást og kærleiksþor.
Til alls þess fagra,sem augað sér
og undrun vekur hvar sem er.
Gefur öllum innri sýn
og unað,þar sem sólin skín.

Inn í barnsins blíðu sál
býr fegurðin og ró,
sem geislar út frá björtu brosi,
þar barnsins sálin hló.
Það finnur ást og unaðsyl,
frá öllu sem er til.
Á kinnar rjóðar kyssa má,
sá koss er lífsins spil.

Ekkert er jafn yndislegt
og eiga barnsins sál.
Finna litlar ljúfar hendur
og líka barnsins mál.
Hvísla inn í eyra manns
með innilegum són.
Pabbi og mamma,ég elska ykkur,
ekkert fær breytt þeim tón.

ljóð:Bjarni Marinó Þorsteinsson


til baka