Síglaði sunnanblær og sólgyllta haf, ljúfar eru vonirnar, sem vordagur gaf.
Segið mér að sunnan - ég síst fæ skilið í,- hví er úti við hafsbrún ógnandi ský?
Blær í blöðum þýtur, - breytast skýjadrög. Dimmir líða skuggar yfir skóginn og lög.
Vindsog í skógi, - og skruggur - og skúr! - Smáfuglarnir leynast bak við limgarð og múr.
Ljóð: Jakobína Johnson