Óskin

Alladin ljá mér lamann
mér liggur á í dag
því ég sé blessuð börnin
berjast um moldarflag

Gef þú mér iðgrænt engi
og afar stóra höll
með gömlum góðum þjónum
svo geti ég hýst þau öll

Þau ganga um steinlögð stræti
og standa við sölutorg
og þekkja ei af alheim annað
en eina stóra borg

Þau mega ei ganga um grasið
þó grænan sjái blett
og blóm eru djásn
sem demant í dýra umgjörð sett

Í var í ævintýri
áður slík sæla vís
hjarta mitt himinn hrífur höllin
sem óvænt rís

Umgirt af engi grænu
alsett með litfríð blóm
og börn sem því yndi una
og engin hendi tóm

Alladin ljá mér lampann
mér liggur á í dag
seð þú mitt hjartans hungur
helst fyrir sólarlag

Þá get ég sagt þeim sögur
og sýnt þeim við aringlóð
að Alladin ennþá heyrir
ef óskin er heit og góð

Ljóð:Jakobína Johnson


Óskin