Boðberi,sumars
og sólar,
sestu í garðinn hjá mér.
Furan og fálaufguð tré,fagna,
þú komin ert hér.
Syngdu
mér,Lóan mín ljúf
lofsöng um vorið,á ný.
Vektu af vetrarins dróm,
vonir með dirr dirrum dí.
Vorið
breiðir sitt vængjahaf
vítt um dali og grund.
Sólarvarmi og vorsins blær
vekur allt líf,á sinn fund.
Ástkæra
Lóan mín ljúf,
láttu mig njóta,hvert vor,
greina ´´i garði hjá mér,
gengin þín vorboðaspor.
ljóð
Þórður G.Halldórsson