|
Þú
gullna blóm
Þú
gullna blóm, þú græna blað,
þú gjöf frá lífsins hjarta-stað,
er lít ég inn í auga þitt
mér opnar drottinn veldi sitt.
Þitt
innra samband,sjónum manns,
er samræmið í verkum hans.
Þín ytri fegurð,engum skýrð,
er endurskin af ljóssins dýrð.
Þín
angan hrífur allra skyn,
sem áhrif blíð frá göfgum vin.
Þú bjartur geisli á gengnum stig
með gjöfum himins tel ég þig.
Ljóð
Jakobína Johnson
|