Hér er sungið um þann tíma ársins þegar litadýrð gróðursins sker í augun rétt áður en lauf falla til jarðar. Ósk hefur hér sett eigin lög við hauststemmingu íslenskra skálda sem tjá tilfinningar sínar í hjartnæmum ljóðum til alls þess er hefur fæðst og er dæmt til að deyja, utan lagið 'Jú, ég hef áður unnað' sem er samið af Mike Pollock og Gunnþóri Sigurðssyni, Ósk setti melódíu ofan á rokkaðann grunninn þeirra. Anna Lucy dóttir hennar söng einsöng í lögunum 'Hvaðan komst þú?' og 'Þegar K N frétti lát Stepháns G. Stephánssonar', aðeins 8 ára að aldri.

Ljóðin á disknum:

1. Þú gullna blóm
2. Illagil
3. Jú, ég hef áður unnað
4. Draumur hjarðsveinsins
5. Dimmuborgir
6. Vögguljóð
7. Hvaðan komst þú?
8. Harpan
9. Haustvals
10. Haustið
11. Þegar K.N. frétti lát Stefáns G. Stefánssonar


Málverk á framhlið málaði Sigga Vala

Hljóðfæraleikarar eru:

Gítar: Þorsteinn Magnússon, Mike Pollock, Kristófer Máni
Kontrabassi: Erla Björg
Bassi: Bíbí, Gunnþór Sigurðsson, Þorsteinn Magnússon
Slagverk: Þórdís Claasen
Harpa: Marion Herrera
Fiðla: Dan Cassidy
Barnarödd: Anna Lucy
Píanó, þverflauta, söngur: Ósk Óskarsdóttir

geisladiskarnir