|
Hvaðan komst þú?
Hvaðan
komst þú litla ljúfa sál?
Leystu þetta djúpa huliðsmál.
Þú sem lyftir hug á hærra svið,
hjartans æðstu hvötum veitir lið.
Þú
ert gestur góðum heimum frá.
Guðdómlegt er brosið þitt að sjá.
Seg mér,vinur,áður allt er gleymt,
er þar hvíldin,
sem mig hefur dreymt?
Er
þar samband sálir göfgar við,
sannleiksást og viti búin grið;
fær þar svölun andans æðsta þrá
upptök kærleikans að finna og sjá?
Ekkert
svar en blessað brosið þitt
blíðkar hug og sefar geðrót mitt.
Öruggt svar,því allt,
sem best ég finn,
örvar þessi kæri gestur minn.
Ljóð
Jakobína Johnson
|